![]() |
|
Sumarhús í Grímsnes- og Grafningshreppi
Domus kynnir: Nýtt og fallegt sumarhús/heilsárshús 79,8 fm. á einni hæð með alveg einstöku útsýni til suðurs- austurs og vesturs. Húsið stendur við Skipasund í Hraunborgum og er leigulóð. Húsið er staðsett neðst í landinu við Vaðnes lóðamörk. Húsið er með hita í gólfum og klætt að innan með eldvarnarplötum og panil í lofti. Fjórir gólfvellir í 10 - 15 mínútna akstri og einn gólfvöllur á staðnum.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, eldhúsið opið inn í stofu, geymsla með sér inngangi. Útgengi út á pall með heitum potti.
Á svæðinu er sundlaug, minigolf, 9 holu gólfvöllur í göngufæri, ekki nema 5 mínútum frá Kiðjabergs gólfvelli.
Um er ræða fallegt nýlegt sumarhús á grónum og friðsælum stað með fallegu útsýni. Sumarhús sem vert er að skoða.
Upplýsingar um eignina veitir Elsa löggiltur fasteignasali í síma 664-6013 eða elsa@domus.is