Fasteignasalan Domus á Blönduósi kynnir stórt og vel staðsett einbýlishús með bílskúr við Hvammstangabraut á Hvammstanga. Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1979, samtals skráð 245,2 fermetrar að meðtöldum 41,2 fermetra bílskúr.
Á efri hæð er gengið inn í flísalagða forstofu með fatahengi og gestasnyrtingu. Inn af forstofu er gangur opinn inn í bjarta og rúmgóða stofu/borðstofu með góða lofthæð. Þarna er líka gengið inn í eldhús með upprunalegri og snyrtilegri eldhúsinnréttingu og borðkrók. Á hæðinni er jafnframt geymsla/búr með hillum. Úr stofunni er gengið út á svalir sem snúa út í garðinn.
Á neðri hæð er gangur og 4-5 herbergi, þar með talið hjónaherbergi með stórum fataskáp. Á neðri hæðinni er jafnframt snyrting með baðkeri og salerni. Þar er jafnframt stórt herbergi með heitum potti í gólfi, sturtu og salerni. Undir lágum stigapalli er lúga inn í rúmgóða geymslu með hillum og þvottahús með hurð út í garð. Á norðurgafli er svo sérinngagur á neðri hæðina með flísalögðu anddyri og opnu geymslurými með lagnagrind og skolvask.
Gólfefni á herbergjum, eldhúsi, stofu, göngum og stiga er ágætlega útlítandi parket. Ljósleiðari er í húsinu.
Bílskúrinn er innbyggður og með tveimur stórum gluggum sem gefa góða birtu.
Húsið hefur fengið gott viðhald og lítur ágætlega út. Þó má benda á að ofnar eru að mestu upprunlegir sem og flestar lagnir.
Upplýsingar veita Stefán Haraldsson s 440 6030 eða 894 1669 stefan@domus.is eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 7972 stefano@pacta.is