Domus fasteignasala kynnir 3ja herbergja raðhús með innbyggðum bílskúr á Blönduósi. Húsið er byggt árði 1982 úr steinsteypu, samtals skráð 116,4 fermetrar og þar af er bílskúr 28 fermetrar. Eignin hefur sér lóð sem er skrá 497,9 fermetrar.
Eignin skiptist í forstofu, 2 sverfnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Forstofan, baðherbergið og eldhúsið eru með flísalögð gólf, en parket á stofu og svefnherbergjum. Í svefnherbergjum eru fataskápar. Innréttingar eru allar komnar til ára sinna en líta snyrtilega út. Ágætur timburpallur er við húsið. Þak er nýmálað en það þarf að setja hatt á veggi í þaki.
Í bílskúrnum er lakkað steingólf, þar er bæði vatn og rafmagn. Innangengt er úr íbúð í bílskúr. Geymsluloft er í skúrnum.
Upplýsingar veitir Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 7972 eða 8919425 stefano@pacta.is