Hlíðarbraut 2, 540 Blönduós
54.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
162 m2
54.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1971
Brunabótamat
75.600.000
Fasteignamat
39.600.000

Domus Fasteignasala á Blönduósi kynnir til sölu einbýlishúsið Hlíðarbraut 2 á Blönduósi. Um er að ræða steypt einbýlishús frá 1971 á einni hæð með bílskúr. Húsið er 121,9 fm að stærð og bílskúrinn 40,5 fm að stærð. Alls 162,4 fm. Húsið stendur á 850 fm leigulóð. 

Um er að ræða fallegt einbýlishús á vinsælum stað í bænum þar sem stutt er í alla þjónustu. Við húsið er stór hellulögð innkeyrsla og mjög stór gróinn garður umhverfis húsið. 

Nánari lýsing: 

Forstofa er flísalögð með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús er með ljósri innréttingu og korki á gólfi. 
Stofa/borðstofa er stór og rúmgóð með parketi á gólfi og viðarlitum panil í lofti. Stór gluggi er í stofunni með góðu útsýni út í garð.
Baðherbergi er flísalagt með dökkri innréttingu og baði/sturtu. 
Svefnherbergi eru 3 talsins og eru með parketi á gólfi. 
Garður: Mjög stór og gróinn garður er umhverfis húsið og einnig sólpallur. 
Innkeyrsla: Stór og rúmgóð hellulögð innkeyrsla er við húsið. 
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr er við húsið og útgengt er úr bílskúr út í garð.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.