Mýrarbraut 1, 540 Blönduós
39.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
157 m2
39.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1963
Brunabótamat
56.850.000
Fasteignamat
31.550.000

Domus Fasteignasala á Blönduósi kynnir til sölu Mýrarbraut 1 á Blönduósi í Húnabyggð. 

Um er að ræða 130,4 fermetra einbýlishús úr holsteini og 26,8 fm bílskúr. Samtals 157,2 fm. Húsið er frá árinu 1963 og er að mestu upprunalegt að innan og hefur fengið ágætis viðhald að utan. Bílskúrinn er frá árinu 1976.

Húsið skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, stóra stofu og fimm svefnherbergi. Á gólfum er ýmist parket eða dúkur en á baðherbergi eru flísar á gólfi og veggjum. 

Við húsið er nokkuð stór og fallegur garður. 

Eignin stendur á mjög góðum og vinsælum stað á Blönduósi þar sem er stutt í alla þjónustu. 

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.