Sólheimar , 540 Blönduós
20.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
178 m2
20.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
57.850.000
Fasteignamat
24.850.000

Domus Fasteignasala kynnir til sölu einbýlishúsið Sólheima á Blönduósi í Húnabyggð. 

Um er að ræða einbýlishús úr timbri frá árinu 1956. Húsið er 178,4 fm að stærð og er grunnflötur hæðarinnar um 90 fm.

Húsið skiptist í anddyri, hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Á neðri hæð er töluvert mikið geymslurými og tengi fyrir þvottavél.
 
Í eldhúsi er snyrtileg eldhúsinnrétting.
Samkvæmt fyrri eiganda var baðherbergið tekið í gegn árið 2012.
Tvö svefnherbergjanna eru með innbyggðum skápum.
Holið er rúmgott með innbyggðum skáp.
Anddyri með fatahengi

Það sem hefur verið gert seinustu árin:
2021 - göt á járni bætt til að koma í veg fyrir leka.
2022 - settur nýr brunnur 
2023 - sett þakrenna þar sem vantaði
2023 - þakkanti lokað þar sem hann var opinn
2023 - húsið málað að innan
2023 - byrjað að mála húsið að utan
 
Hluti af innbúi getur fylgt með kaupunum.
Komið er að ýmsu viðhaldi á húsinu að innan sem utan, mælst er til þess að kaupandi kynni sér ástand
eignarinnar vel.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.