Freyjugata 50, 550 Sauðárkrókur
81.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
7 herb.
181 m2
81.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1953
Brunabótamat
72.850.000
Fasteignamat
53.600.000

Domus Fasteignasala á Blönduósi kynnir til sölu Freyjugötu 50 á Sauðárkróki. 

Um er að ræða 181,5 einbýlishús frá árinu 1953 en bílskúr er frá árinu 1963. Þar af er íbúð 145,5 fermetrar og bílskúr 36 fermetrar

Eignin er á tveimur hæðum. Á efri hæð eru stofa og fjögur svefnherbergi. Á neðri hæð eru forstofa og stofa, borðstofa, þvottahús, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. 

Góð innkeyrsla er við húsið og einnig garður bakatil. Rúmgott malarplan er fyrir framan húsið þar sem er til dæmis hægt að geyma hjólhýsi, kerrur og annað slíkt.

- Búið er að fara í töluverðar endurbætur á síðustu árum að utan sem innan. 
- Nýlegar rúður eru að hluta á efri hæð.

Nánari lýsing:

Neðri hæð: 
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi
Stofa/borðstofa er stór með flísum á gólfi og fallegri lýsingu.
Eldhús er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu og setukrók.
Þvottahús er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu þar sem tæki eru í vinnuhæð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu og baðkari.
Svefnherbergi á eru tvö talsins á neðri hæð og eru með parketi á gólfi og fataskápum.

Efri hæð: 
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og viðarlitum panil í lofti. Einnig er huggulegur setukrókur með arin. 
Svefnherbergi á efri hæðinni eru fjögur talsins og öll undir súð. Inn af einu svefnherberginu er myndarlegt fataherbergi.

Um er að ræða fallegt einbýlishús á góðum stað þar sem stutt er í alla þjónustu. 

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.