Hnjúkabyggð 27 , 540 Blönduós
23.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
64 m2
23.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1976
Brunabótamat
32.150.000
Fasteignamat
10.350.000

Domus Fasteignasala á Blönduósi kynnir til sölu íbúð í fjölbýlishúsinu að Hnjúkabyggð 27 á Blönduósi í Húnabyggð. 

Um er að ræða 64 fermetra íbúð á 3. hæð í blokkinni á Blönduósi. Húsið er steypt frá árinu 1976 og hefur fengið þokkalegt viðhald. T.d. er nýlega búið að mála að utan og setja nýja glugga í aðra hlið hússins. 

Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Góðar svalir eru í íbúðinni. Parket er á gólfum og innréttingar hafa verið endurnýjaðar og eru í þokkalegu ástandi. 

Um er að ræða góða íbúð á mjög fallegum stað í bænum með mjög flottu útsýni. 

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.