Ytri-björg , 546 Skagaströnd
49.000.000 Kr.
Lóð
5 herb.
100 m2
49.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1942
Brunabótamat
89.730.000
Fasteignamat
31.299.000

Domus Fasteignasala kynnir jörðina Björg 1 og 3 (Ytri Björg). 

Jörðin Björg 1 og 3 er sjávarjörð úti á Skaga Húnabyggð í um 35 kílómetra fjarlægð frá Blönduósi. Jörðin er um 400 hektarar að stærð og þar af ræktun um 18 hektarar. Veiðiréttur í vötnum á Skagaheiði fylgir. Jörðin liggur að jörðunum Sviðningi, Kálfshamri, Króksseli, Tjörn og Syðri Björgum.

Íbúðarhús: Á jörðinni er rúmlega 100 fermetra íbúðarhús frá árinu 1942 og 1957 og hefur þessu húsi verið nokkuð vel haldið við á síðustu árum og meðal annars er nýlegt járn á þaki. 

Aðrar byggingar: Á jörðinni er geymsla frá árinu 1978 sem er alls 130,7 fermetrar að stærð og er innangent úr íbúðarhúsinu í þessa geymslu. Hér er þak orðið lélegt og ýmislegt sem er þörf á að fara að laga og endurnýja. Þá er sambyggt við geymsluna véla og verkfærageymsla frá árinu 1987 sem er alls 36 fermetrar. Þá er á jörðinni hlaða frá árinu 1975 alls 199 fermetrar að stærð. Húsið er stálgrindarhús og lítið þarna eftir nýtenlegt nema grindin. 

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.