Brekkubyggð 28, 540 Blönduós
59.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
178 m2
59.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1972
Brunabótamat
77.300.000
Fasteignamat
41.100.000

Domus Fasteignasala á Blönduósi kynnir til sölu einbýlishúsið Brekkubyggð 28 á Blönduósi. Um er að ræða steypt einbýlishús frá 1972 á einni hæð með bílskúr. Húsið er 133,8 fm að stærð og bílskúrinn 45 fm að stærð. Alls 178,8 fm. Húsið stendur á 700 fm leigulóð. 

Um er að ræða fallegt einbýlishús með stórkostlegu sjávarútsýni á rólegum stað í bænum þar sem stutt er í alla þjónustu. Við húsið er stór rúmgóð innkeyrsla og mjög fallegur garður umhverfis húsið.

Húsið hefur fengið gott viðhald og meðal annars er búið að skipta um alla glugga í húsinu og húsið nýlega málað að utan. Einnig er búið að endurnýja eldhús, baðherbergi og þvottahús nýlega. 

Árið 2023 var þakkantur endurnýjaður ásamt öllum lögnum og ofnum í húsinu. 

Nánari lýsing: 

Forstofa er með parketi á gólfi og inn af forstofu er gestasnyrting. 
Eldhús er með nýlegri ljósri innréttingu og parketi á gólfi. Setukrókur er í eldhúsinu.
Stofa/borðstofa er stór og rúmgóð með parketi á gólfi og mögnuðu sjávarútsýni. Útgent er úr stofu út í bakgarð.
Baðherbergi er flísalagt með viðarlitaðri innréttingu og sturtuklefa. Baðherbergið var endurnýjað nýlega. 
Svefnherbergi eru 4 talsins og eru með parketi á gólfi. 
Þvottahús/forstofa er með parketi á gólfi og nýlegri ljósri innréttingu. Annar inngangur er í þvottahúsi.
Garður: Fallegur garður er umhverfis húsið og í bakgarði er mjög fallegt sjávarútsýni.
Innkeyrsla: Rúmgóð innkeyrsla er við húsið.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr er við húsið. 

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.