Flúðabakki 1, 540 Blönduós
33.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
82 m2
33.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
57.650.000
Fasteignamat
14.000.000

Fasteignasalan Domus á Blönduósi kynnir góða 3ja herbergja íbúð frá árinu 1990 fyrir eldri borgara í Flúðabakka 1.

Íbúðin er 82,1 fermetri auk þess sem íbúðin á hlut í sameign sem talin er 24,8 fm. Góður sólpallur er við eignina.

Í íbúðinni er stofa, tvö herbergi, geymsla, bað og eldhús.Parket á gólfum, baðherbergi flísalagt með sturtuklefa og aðstöðu fyrir þvottavél. Dúkur á gólfi í geymslu.

Íbúðin selst í því ástandi, sem hún er nú. Seljandi hefur haft takmarkaða viðveru í eigninni að undanförnu og getur því ekki upplýst nánar um ástand hennar en fram kemur í söluyfirliti. Áhugasömum er því bent á að skoða eignina vandlega og leita við það aðstoðar fagmanna eftir þörfum.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.