Laugaból , 531 Hvammstangi
31.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
4 herb.
105 m2
31.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1948
Brunabótamat
41.900.000
Fasteignamat
18.600.000

Domus Fasteignasala kynnir til sölu einbýlishúsið Laugaból sem er á fallegum og rólegum stað á Laugarbakka í Húnaþingi Vestra.

Um er að ræða einbýlishús úr timbri frá árinu 1948 sem er skráð 105,2 fm að stærð. Húsið er á tveimur hæðum.

Húsið stendur á leigulóð sem er 740 fm að stærð.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Eldhús/borðstofa: Komið er inn í rúmgott opið rými þar sem eru eldhús og stofa. Parket er á gólfi og veggir panilklæddir. Viðarlituð innrétting er í eldhúsi.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og veggir eru panilklæddir
Baðherbergi er flísalagt með ljósri innréttingu og sturtu
Svefnherbergi er með parketi á gólfi 

Efri hæð:
Stofa/alrými: er panilklædd og undir súð
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru á efri hæð og eru þau panilklædd og undir súð.


Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034, [email protected] eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425, [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.