Domus Fasteignasala kynnir til sölu einbýlishúsið Brekkubyggð 20 á Blönduósi. Um er að ræða steypt einbýlishús frá 1973 á einni hæð með bílskúr. Húsið er 138 fm að stærð og bílskúrinn 33,8 fm að stærð. Alls 171,8 fm. Húsið stendur á 700 fm leigulóð.
Um er að ræða huggulegt einbýlishús með stórkostlegu sjávarútsýni á rólegum stað í bænum þar sem stutt er í alla þjónustu. Við húsið er stór rúmgóð innkeyrsla og stór garður umhverfis húsið.
Nánari lýsing: Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús er með viðarlitri innréttingu og dúk á gólfi. Setukrókur er í eldhúsinu.
Stofa/borðstofa er stór og rúmgóð með parketi á gólfi og mögnuðu sjávarútsýni. Útgent er úr stofu út í bakgarð.
Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu og baði.
Svefnherbergi eru 4 talsins og eru með parketi eða dúk á gólfi. Ágætis skápapláss er í svefnherbergjum.
Þvottahús/forstofa er með epoxy á gólfi og ljósri innréttingu. Annar inngangur er í þvottahúsi sem liggur út í bakgarð.
Baðherbergi II er inn af þvottahúsi/forstofu og þar er sturtuaðstaða.
Garður: Stór garður er umhverfis húsið og í bakgarði er mjög fallegt sjávarútsýni.
Innkeyrsla: Rúmgóð innkeyrsla er við húsið.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr er við húsið.
Komið er að ýmsu viðhaldi á húsinu og mælum við eindregið með því að kaupendur geri ítarlega skoðun á eigninni áður en kaup fara fram. Hvorki Domus Fasteignasala né núverandi eigendur geta fullvissað sig um ástand eignarinnar og þær mögulegu endurbætur sem eignin gæti þarfnast, svo ítarleg skoðun mun veita betri innsýn í ástand hennar. Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.