Rauðalækur 10, 105 Reykjavík (Austurbær)
97.800.000 Kr.
Fjölbýli
5 herb.
116 m2
97.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1961
Brunabótamat
53.300.000
Fasteignamat
83.400.000

Domus Fasteignasala kynnir í einkasölu Rauðalæk 10, 105 Reykjavík. 

Um er að ræða 116,4 fm íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsi, þar af stærð íbúðar 107,7 fm, anddyri 2,3 fm, geymsla í kjallara 6,4 fm.
Bílskúrsréttur fylgir hæðinni.
Réttur til að byggja hæð ofan á er með íbúð á fyrstu hæð.
Hleðslustöð fyrir rafbíla fylgir með, þriggja fasa.

Þær framkvæmdir sem farið hefur verið í á síðustu árum eru eftirfarandi: 
  • Allar frárennslislagnir og dren endurnýjað einnig var skipt um allar neysluvatnslagnir í húsinu haustið 2014.
  • Útitröppur 1. og 2.hæð brotnar upp og lagaðar settur hiti í tröppur 2016.
  • 2020 skipt um útihurð og glugga í sameign.
  • Skipt um glugga á baðherbergi 1. og 2. hæð um leið.
  • Sumarið 2021 skipt um þak. Stendur til að mála það í sumar 2025.
  • Skipt um stærri glugga í stofu og minni glugga í eldhúsi 2023.
  • Liggur fyrir að skipta um glugga sem eftir eru á næstu árum
Gengið er inn í teppalagðan stigagang sem er bara fyrir þessa íbúð og upp á stigapall. Af stigapalli er gengið inn í eitt herbergið, og inn í hol. Fataskápur er á stigapalli. Holið tengir saman stofu, tvö svefnherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi og opið er inn í eldhús.

Stofa og hol eru parketlögð (parket lagt 2004.
Frá stofu er gengið út á svalir.
Hjónaherbergi: Plastparket á gólfi nýlegt, fataskápur, hurð út á svalir.
Herbergi 1. (frá stigapalli) Plastparket , lítill fataskápur.
Herbergi 2. Plastparket
Herbergi 3. Parket gamalt. Fataslá fest í loft.
Eldús: Uppgert 2010. Flísar á. Gólfi. Nýleg uppþvottavél og nýlegur bakaraofn.
Baðherbergi: Gert upp 2015. Flísalagt, sturtuklefi.
Geymsluloft í þakrými.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.





 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.